DARPHIN húðvörurnar eru franskar og má rekja upphaf þeirra til ársins 1958, þegar franskur húðsérfræðingur Pierre Darphin hóf meðferð, sem hann byggði á notkun fjölómettaðra jurtaolía / aromatiskra olía (aromatherapy).
Eiginleikar aromatiskra olía eru einkum möguleikar þeirra til að komast gegnum húðina, svo og burðar og flutningsgeta þeirra t.d. á raka og næringarefnum.
DARPHIN húðvörurnar innihalda einnig mikið magn af jurtasöfum / serum, sem gerir það að verkum að í heild sinni hefur DARPHIN eitt hæsta magn lífrænna efna, sem sett eru í snyrtivörur (phytotherapy).
Sá eiginleiki þessara lífrænu efna að komast svo vel inn í og gegnum húð byggir mikið til á smæð mólikúlanna. Mólikúlin eru afar fjölbreytileg og með mismunandi virkni. Þau geta verið hreinsandi, slakandi, róandi, örvandi, nærandi, endurnýjandi, en hafa þó það sameiginlegt að binda og flytja efni með sér (phytobiology).
Aromatískar olíur eru aðallega unnar með því að eima jurtir. Það geta verið blómin, fræin, laufin, ræturnar, sem gefa margvíslegar olíur og safa (affallið). Þær eru gjarnan kallaðar ilmolíur hér á Íslandi, því þær hafa einstakan og unaðslegan ilm, sem rýkur hratt upp nefholið og kveikir á ýmsum vellíðunar straumum í líkamanum og ekki síður í sálinni.
DARPHIN hefur að ráða yfir mjög fjölbreyttri vörulínu, þar sem hægt er að sérsníða margvíslegar meðferðir fyrir hin ýmsu húðvandamál og þannig koma á móts við þarfir hvers og eins.
Við erum öll sérstök með mismunandi þarfir, þess vegna býður DARPHIN sína einstöku og fáguðu húðmeðferð, sem við getum svo vel nýtt okkur til árangurs. |
|